17júlí
ÉG ER HÆTT Á ÞESSARI SÍÐU OG ER KOMIN MEÐ SÍÐU ALEIN !
WWW.blog.central.is/kristin_h
allir að skoða hana hún er svo mergjuð að ég held ekki vatni yfir henni
svo er hitt gerpið hún hildur komin með síðu
www.blog.central.is/hillary-clinton !
Okey ógeðslega gaman
bææææææææææææ
12júlí
Vitiði ég ætla núna að hafa þetta seinasta bloggið mitt á þessari síðu því í fyrsta lagi er ég hætt og í öðru lagi er ENGIN aðsókn á þessa síðu. Svo ég kenni eiginlega bara ykkur skoðendunum um það að ég loksins tók þá ákvörðun og hætti.
OK ég verð bara að skrifa pínu um fyrsta æfingaraksturstímann minn með pabba
HANN var að deyja úr STRESSI. Það sást eiginlega bara á honum þegar ég var í pínu hættu (í hans augum) öskraði hann : áSTA STOPPAÐU NÚNA STOPPA. ég bara já pabbi ég veit.. róaðu þig niður.. Hann sökk alveg ofaní sætið af stressi. og svo var hann að reyna að gera mig stressaða með að segja ásta núna erum við að fara að taka af stað uppí brekku á ljósum. frekar hættulegt því það er kona alveg í rassgatinu á þér. en ég tók því bara pínu vel . Drap 1 sinni og tók svo af stað vel
ég get samt sagt ykkur að pabbi var búinn að kenna mér miklu meira en þessi ökukennari kenndi mér í öllum sínum tímum. Hann er líka að tala AÐEINS of mikið um umhverfið en að kenna mér og er búinn að vera að kenna í 40 ár... TOO MUCH
En nenni ekki að skrifa meira
Nema það að ég eslka ykkur hahah
SEE YOU
En þessi síða er DEAD hún dó klukkan 21:18 kvöldið 11. júlí 200 6
Meigi hún hvíla í friði
Tökum saman og höfum þögn í eina mínútu
Takk fyrir
ÁSTAR KRISTURINN
01júlí
ÉG ER HÆTT Á ÞESSARI SÍÐU BLEBLE

KVEÐJA HJÖRDÍS
27júní
ÞAÐ ERU KOMNAR NÝJAR MYNDIR ÚR GRILLVEISLU ZÖRU ! ÆSISPENNANDI MYNDIR ALLIR AÐ SKOÐA OG COMMENTA !
VÚHÚ PARTY YEAH YEAH YEAH
OKEY BÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ
Inniheldur m.a
Þetta



Allir að kíkja ógeðslega gaman já ví
21júní
Ok tilraun númer tvö til að blogga þar sem hitt hvarf þegar ég var að blogga í gær. Ef þetta kemur ekki þá gefst ég upp og hætti að blogga forever !
Kristín bloggaði um seinustu helgi sem var algjör snilld þannig ég þarf ekkert að tala um hana. Það sem stóð samt uppúr var að ég kyssti bachelorinn, held samt á móti hans vilja haha þar sem ég og kristín hálfréðust á greyjið manninn :/ En hann er celebrity þannig mér er drullusama hoho
Svo var hjördís krull að koma heim frá London og var með mikið að segja, sérstaklega um þessa hryðjuverkamenn. Fórum svo til hennar á mánudagskvöldi þar sem við fengum flottar gjafir. Takk sæta :* Rifjuðum upp góða tíma þegar við vorum í englandi, sérstaklega þegar hjördís var hrifin af strák sem leit út eins og önd, kristín var hrifin af einhverjum stera strák sem leit út að vera 18 en var í rauninni 14 og hét JEAN- MICHEL og ég var hrifin af heyrnalausum strák frá Rússlandi eða eitthvað. Tek fram að hrifningin var ekki endurgoldin af neinum þeirra :(
Síðan ætlum við næsta sumar í frönskuskóla í Nice og held að við ætlum að vera þar í mánuð. Stelpur ég er strax byrjuð að æfa mig, búin að kaupa franskar lesbækur hehe. Þannig ég spyr ykkur görls hvar er metnaðurinn, á ekkert að fara æfa sig ? Boðin á skúturnar koma ekki af sjálfum sér !
Ég var síðan að komast að því að ég þarf bara aðeins að borga 97500 í skartgripabúðinni sem ég fékk gjafabréf í til að fá eitthvað flott þar sem flest þarna inni kostar um 100 þús kall eða meira. ógeðslega ódýrt !
En ég ætla að fara reyna að eyða þessum kærkomna frídegi í eitthvað annað en að hanga heima vaknaði í sjokki því ég hélt að ég væri orðin of sein í vinnuna, en ég ætla að byrja að fara út að skokka og kannski meira segja að versla eitthvað ef stelpurnar nenna, því ég get ekki farið að versla ein (komst að því í gær)
Toodles
19júní
Jæja best að blogga því þessi síða er svo dauð ehe !
En vá eru þið að djóka hvað þetta var ógeðslega skemmtileg helgi !
Á föstudaginn var grillparty hjá Zöru og vá vá hvað það var gaman. Þemað var aftur til fortíðar, það kom kokkur sem eldaði mjög góðan mat og svo var étið og kosningar og solleis. Síðan var bara dansað og drukkið og trallað fram á nótt. Síðan kom leynigestur og það var enginn annar en BACHELORINN og djöfull var það fyndið það voru allir grenjandi úr hlátri. Hann labbaði inn í jakkafötum með rósavönd fyrir andlitinu. Svo tók hann vöndinn frá og það var hann ! Síðan var hann að kalla upp nöfn og gefa rósir og ég fékk rós og ég kyssti hann á kinnina ! mont mont mont ! Hann fékk meira segja tvíburakoss Svo var bara haldið heim eftir skemmtilegt stopp í smáralind þar sem ákveðinn aðili ætlaði að pissa haha 
Svo í gær vaknaði ég seint ákaflega mygluð og ógeðsleg. Fórum niðrí bæ um kvöldið og þar var leiðinlegt enda hundleiðinleg atriði. Fórum á rútstun og náðum ampop og síðan var leiðinlegt þar. Hittum fullt af krökkum sem var mjög gaman. Fórum síðan ég hildur arna og ásta niðrí bæ aftur og hittum krakka og svo fórum við á Barinn þar sem var dansað en það var ekkert spes þar þannig við fórum og keyrðum niður laugarveginn... og fórum síðan að skoða bílasýningar haha mjög gaman fórum síðan á Hróa og keyptum okkur pizzu og keyrðum á afskekktan rómantískan stað við sjóinn... ´Svo var bara haldið heim.
Í dag þá fór ég bara í ikea og keypti mér púða og kringluna að leita mér af skóm og svo eiginlega ekkert meir.
Hjöbbaló er að koma heim í kvöld var í London baby þannig hlakka til að sjá litla sjoppahollekkinn.
En já bæ
14júní
OJj bara tilveran á þessari litlu eyju út í rassgati er ekki góð...
Ég er núna byrjuð að vinna á fullu í besta starfi í heimi (NOT) Póstinum. Það er allt í lagi þessa fyrstu daga. Svo var ég líka með hjördísi þannig að ég gat talað við eitthvern
En núna í dag var ég alein því hjördís tichaði mig og skrapp til London í dag. það var hryllilegur vindur þegar ég var að fara að bera út og það hjálpaði ekki alveg að ég var að bera í lindunum sem eru oná "fjalli". Bílstjórinn sagði: Ég vona að þú missir ekki póstinn og hann fjúki. ég: nei haha það gerist ekki ég passa hann.
Neibb það var ekki rétt hjá mér að ég mundi passa hann... Leið og ég var komin í hús númer tvö þá missti ég einn póst og ætlaði að taka hann upp þá missti ég fleiri og svo fleiri og blöð og allt var fjúkandi út í allar átttir.... ég að hlaupa á eftir honum með póstbunka í hendinni.... Blaðið fór í garð hjá eitthverri konu og þurfti ég að týna það blautt og ógeðslegt upp og komið allt í sundur. Svo ég vona líka að ég hafði náð öllum póstinum en blaðið mátti bara fara í rassgat.
Svo er ég alltaf svo paranoid að láta sækja mig svona snemma því ég var búin hálf 1 í dag því þá held ég alltaf að ég þurfi að taka eitthvað auka hverfi sem er Not gúd... Svo ég labbaði heim úr lindunum takk fyrir
En skemmdi það auðvitað þegar ég kom heim og fékk mér fimm ristaðar brauðsneiðir með osti og sultu og auk þess 1 jógúrt... YESSS way to go ÁSta.... ég er alltaf svo lengi að verða södd svo ég borða bara og borða og núna er ég að deyja í maganum Gat nú verið
En vááá ég er að skrifa um vinnuna . Þið eruð örugglega að deyja úr leiðindum á að lesa þetta en Só
Ég ætla því ekki að hafa þetta lengra
En stelpur ætluðum við á Laugarveginn eða?
I'm FREE
ÁstarKristurinnn
13júní
Já ég sé að þessi síða er að meika það og er vinsælli en beljudjus ehhhe ekki..já var nú bara að vinna í dag sem var svaka stuð og á morgun er ég að fara til London, djöfull hlakka ég til
ég er að búast við að sjá eitthvern frægan eins og síðast þegar við þrjár vorum i London þá sáum við engan annan en Lee Ryan og 1 hommann í Queer eye for the straight guy...haha já þetta var svaka áfall þá en já..good times good times!
Ég verð á hóteli sem heitir Holiday inn King's cross og vonandi verður það geðveikt það er víst sundlaug þar
svo verður farið á vaxmyndasafnið, fleiri söfn, og sérstaklega á oxford street að versla og svo kemur bara allt í ljós hvað verður gert.
En mér langaði bara til að kveðja i bili og sjáumst bráðlega BLE...HJÖRDÍS KVEÐUR



SÆTT
BÆ!
11júní
OK það er geðveikt að fara til útlanda í 2 vikur í sól og sumaryl en þegar á endasprettinn er kominn þá er það heitasta þrá að koma heim í íslenskan mat... mikla hreyfingu og Rúmið mitt góða og mjúka.
Og það er líka góð ástæða yfir að vilja koma heim.... Vinirnir og já......... nóg að vera með bróðir mínum stanslaust í 2 vikur .... ég varð að vera vitlaus á honum. Langaði að kirkja hann á tíma og geri það enn því ég er ekki enn komin heim.
Núna er ég í Köben og bíð þess eftir að fá að fara heim sem er á morgun klukkan eitt. Við lenntum hérna í köben klukkan hálf 10 og þá föttuðum við að það var flug til reykjavíkur klukkan 11 í kvöld.. Pabbi hljóp til þess að kanna hvort það væri möguleiki fyrir okkur að fara með því flugi. En Nei það eru eitthverjar fáránlegar reglur yfir að maður getur ekki breytt miðanum ef hann er ekki rafrænn. og vélin var HÁLF!!!! en jæja.
Þetta frí var algjört æði og góð afslöppun frá ykkur. Segi svona. Sakna ykkar og hlakka mjög til að sjá ykkur núna þegar ég sit hérna og skrifa. rigningin var bara í þessa 3 daga og svo kom sólin. Hún var samt ekkert sterk. Hitinn þarna úti var frá 20-26 stiga hiti sem telst ekki mikið fyrir miðjarðarhafið eins og ég nefndi seinast.
Svo fórum við í dýrustu eyju í heimi held ég eða dýrustu allavegana á ítalíu. Það hefur aldrei rignt jafn mikið og svo kom HAGL'EL risastórir klumpar í JÚN'I og við spurðum konu og hún sagði að það hefði aldrei ringt í 20 ár í heila viku í júní. Við vorum samt ekki þarna í viku thank god. Svo fórum við á þriðjudaginn til lítinn bæ sem tileinkaður hemmingway.... nohhhhhhhhhh og við borðuðum á geggjuðum stað sem hét Midditerrano sem þýðir Miðjarðarhafið. Allavegana ástæðan fyrir að ég segi ykkur frá þessum stað er að ég hef aldrei á ævi minni séð jafn Fallegan mann á ævinni. Hann var rosalega líkur Orlando Bloom. Samt fallegri. Allt kvöldið var ég að horfa á hann og það skemmtilegasta við þetta að hann var alltaf að horfa á mig.
Ég var að deyja þarna inni og langaði svo að hitta hann eitthvað en hann var auðvitað þjóninn haha Gat nú verið. En ég varð heppinn aftur að pabba mínum fannst þessi restaurant geðveikur svo hann vildi fara þangað aftur. Auðvtiað hafði ég ekkert á móti því og við fórum þar aftur að borða og já heppninn var með mér . Hann var aftur að þjóna þetta kvöld. Ég var svo fegin því hann er SVOOOO sætur. Akkurat mín týpa. MEð mikið svart liðað hár og svo mikið krútt. Grannur og svo eitthvað svo Fallegur ÚFFFFFF já stelpur eins og heyrist þá er ég In love hahaha nei segi svona. Ég veit núna að ´´eg mun aldrei sjá hann aftur.... En maður getur alltaf sagt EF.....
Svo fórum við til rómar og fórum á svona torg... og þar var maður sem var að gera tattoo sem endust í svona mánuð og hann sagði are you sweden... ég no I'm from iceland. Come here I wanna ask you a question... og hann sagði að hann vildi gefa mér tattoo fyrir free því He likes me....
Svo fattaði ég þegar ég var á leiðinni út á flugvöll að hann hafði farið ofaní töskuna mína í leiðinni... þeir voru tveir og STOLIÐ símanum hennar mömmu.....
En pabbi þarf eitthvað að fara á netið svo ég segi meira á morgun
SJáumst ..... verðum að gera eitthvað á morgun:D:D:D:D:D cya babys